Góður hugbúnaður byrjar á því að hlusta. Við setjumst niður með fólkinu og greinum þarfirnar og tækifærin saman. Þannig smíðum við notendavænan hugbúnað.

Frá fyrsta samtali
að nothæfri lausn.

Við vinnum náið með fólkinu sem þekkir viðfangsefnið. Við hittumst, greinum þarfir og tækifæri, mótum lausnina og þróum hana áfram í litlum, sýnilegum skrefum.

  1. 1Hittumst

    Við setjumst niður, hlustum og kynnumst fólkinu, vinnunni og markmiðunum.

  2. 2Greinum saman

    Við skilgreinum þarfirnar, tækifærin og það sem skiptir mestu máli að leysa.

  3. 3Mótum

    Við gerum hugmyndina sýnilega og prófanlega áður en farið er langt í smíði.

  4. 4Smíðum

    Við hönnum og forritum í áföngum svo þú sjáir stöðugt hvað er að verða til.

  5. 5Prófum og ítrum

    Við prófum, lærum og bætum lausnina í takt við það sem við sjáum og heyrum.

Árni Magnússon

Árni
Magnússon

Hugbúnaðarsérfræðingur

Ég hef víðtæka reynslu af greiningu og þróun vefkerfa og legg sérstaka áherslu á notendaupplifun og náið samstarf frá fyrstu greiningu til tilbúinnar lausnar.

Ofið greinir, hannar og þróar vefkerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Víðtæk reynsla af vefkerfum fyrir fyrirtæki, stofnanir og opinbera aðila.

Ertu með hugmynd,
vandamál eða kerfi
sem má verða betra?

Segðu mér frá hugmyndinni þinni í tölvupósti.

Senda tölvupóst

arni@ofid.is